Tix.is

Um viðburðinn

Emilía Hugrún heldur sína fyrstu tónleika í Þorlákskirkju þriðjudagskvöldið 26. júlí. Eins og flestum er kunnugt sigraði Emilía Hugrún söngkeppni framhaldsskólanna sem haldin var í vor og eflaust margir sem bíða spenntir eftir því að heyra meira frá henni. Með Emilíu Hugrúnu leikur Tómas Jónsson á hljómborð, þau ætla að flytja fyrir ykkur uppáhalds lög Emilíu Hugrúnar. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er miðaverð 3000 kr.