Tix.is

Um viðburðinn

Í ár fagnar DIMMA 10 ára afmæli útgáfu plötunnar Myrkraverk en hún markaði tímamót í sögu hljómsveitarinnar með nýrri liðskipan auk þess sem allir textar voru sungnir á íslensku.
Skemmst er frá því að segja að Myrkraverk fékk gríðargóðar viðtökur, seldist vel og færði DIMMU á hærra plan.
DIMMA mun á tónleikunum flytja Myrkraverk í heild sinni ásamt mörgum af sínum vinsælustu lögum.

Um sitjandi tónleika er um að ræða.

Meðlimir DIMMU eru:

Stefán Jakobsson: Söngur
Ingó Geirdal: Gítar

Silli Geirdal: Bassi
Egill Örn Rafnsson: Trommur