Önnur Mósebók 10 ára
Sumarið 2012 kom út hjá Record
Records platan Önnur Mósebók með Moses Hightower, en á henni notaðist
hljómsveitin við svipaða – sálarskotna en séríslenska – uppskrift og á
frumburðinum Búum til börn frá því tveimur árum fyrr, en útkoman að margra mati
ívið áleitnari og heilsteyptari. Platan fer yfir víðan völl, bæði í tónlist og
textum, gamlir hljóðgervlar koma mikið við sögu, tekið er á fönk-sprett að
hætti James Brown, heyra má brasilísk og sýkadelísk áhrif og söngútsetningar
spanna allan tilfinningaskalann. Eins og Búum til börn var Önnur Mósebók
unnin í samstarfi við Magnús Øder sem hljóðritaði á segulband og hljóðblandaði
af snilld.
Segja má að platan hafi hitt í
mark, því auk hressilegrar sölu og einróma lofs gagnrýnenda var hún valin plata
ársins 2012 af Fréttablaðinu, komst á Kraumslistann, fékk Menningarverðlaun DV
og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir lagasmíðar og textagerð auk
tilnefninga fyrir plötu, lag, söngvara og upptökustjóra ársins. Lögin Stutt
skref, Sjáum hvað setur og Háa c (sem Grapevine valdi lag ársins) voru öll þaulsetin
á eða við toppsæti vinsældalista, en í seinni tíð er það ekki síður
kaffismellurinn Tíu dropar sem heldur hita á fólki, hvort sem er á tónleikum
eða á streymisveitum.
Til að halda upp á 10 ára
útgáfuafmæli plötunnar verður blásið til glæsilegra tónleika þar sem fram koma
með sveitinni hljóðgervlagaldrakarlinn Magnús Jóhann Ragnarsson og blásararnir
sem blésu á plötunni sjálfri: Kjartan Hákonarson, Óskar Guðjónsson og Samúel
Jón Samúelsson. Platan í heild og aðrir smellir leiknir af Moses í sparifötunum!