Tix.is

Um viðburðinn

Jazzhátíð Reykjavíkur – Tunglið og ég

Tónskáldið Michel Legrand (1932-2019) hefði orðið 90 ára núna í febrúar. Í því tilefni ætla Heiða Árnadóttir söngkona, Gunnar Gunnarsson píanóleikari, Þorgrímur Jónsson bassaleikari og Haukur Gröndal klarinettuleikari að flytja lög eftir hann.   Michel er helst þekktur fyrir að hafa samið söngleiki og tónlist fyrir kvikmyndir. Lögin verða flutt á íslensku og eru textarnir samdir af þeim Árna Ísakssyni og Braga Valdimar Skúlasyni.   Á efnisskránni eru meðal annars eftirtalin lög flutt á íslensku: ""What are you doing the rest of your life"" úr kvikmyndinni ""The Happy ending"", ""You must believe in spring"" úr myndinni ""The Young Girls of Rochefort""(1967), ""Windmills of your mind"" úr myndinni ""The Thomas Crown affair""(1968), ""The summer knows"" úr myndinni ""Summer of '42""(1971) og ""I will wait for you"" úr söngleiknum ""The Umbrellas of Cherbourg"" (1965). 


Heiða Árnadóttir : söngur
Gunnar Gunnarsson : píanó
Þorgrímur Jónsson : kontrabassi
Haukur Gröndal : klarinett