Tix.is

Um viðburðinn

JAZZPASSINN veitir aðgang að allri dagskrá Jazzhátíðar Reykjavíkur 2022. Handhafar passans fá armbönd við upphaf hátíðar og geta í framhaldinu sótt alla tónleika í Hörpu og Fríkirkjunni án endurgjalds. Jazzpassinn veitir einnig aðgang að „Buchanan Requiem“ í Hallgrímskirkju á lokadegi hátíðarinnar.

Framvísun Jazzpassans veitir 15% afslátt á veitingastaðnum Jómfrúnni, Lækjargötu á meðan á hátíðinni stendur.

Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram dagana 13. til 19. ágúst 2022. Boðið verður upp á glæsilega sjö daga tónleikadagskrá þar sem jazz, blús, fusion og spunatónlist verður í forgrunni og frábært listafólk frá Bandaríkjunum, Evrópu og Íslandi kemur fram. Í ár verður rauði þráður hátíðarinnar af norrænum toga því að tónlistarfólk frá Norðurlöndunum verður áberandi í bland við flytjendur af meginlandi Evrópu og frá Bandaríkjunum að ógleymdu mörgu af okkar fremsta listafólki. Rúsínan í pylsuendanum verður svo í formi stórtónleika í Hallgrímskirkju þann 19. ágúst þar sem verið „Buchanan Requiem“ verður flutt af jazzhljómsveit, stórsveit og kór.


Allar nánari upplýsingar um dagskrána má finna á reykjavikjazz.is