Tix.is

Um viðburðinn

Þrjár systur hlægja saman, gráta, njóta og gera það sem gera þarf í þessari fyndnu og fallegu nýsirkussýningu. Sýningin er innblásin af Norrænum konum, af sögum þeirra og samböndum, stöðu þeirra innan samfélagsins á árum áður og hvernig hún hefur breyst (eða ekki breyst) í nútímanum. Sýningin byggir á mögnuðum loftfimleikum, jafnvægislistum og dans-akróbatík.

Eistneski sirkushópurinn Big Wolf Company samanstendur af þremur ungum konum sem nýta sirkuslistir til að segja mikilvægar samfélagslegar sögur með húmorinn að vopni. Big Wolf Company eru leiðandi afl í þróun sirkuslista í heimalandi sínu og á Eystrasaltslöndunum.

Sýningin er án orða og hentar áhorfendum óháð tungumáli. Hún er 45 mínútur að lengd og hentar börnum frá 5 ára aldri og uppúr. Sýningin fer fram utandyra og eru áhorfendur hvattir til að mæta klæddir eftir veðri.

Fyrir sýninguna er boðið upp á opna sirkussmiðju sem öllum er frjálst að taka þátt í.

Nýsirkussýningin Þrjár systur er hluti af Flipp Festival - sirkushátíð Hringleiks, sem haldin er í fyrsta sinn 25. og 26. júní.

Flipp Festival er styrkt af Barnamenningarsjóð, Reykjavíkurborg og Nordisk Kultur Fund.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Elliðaárstöð.