Hljómsveitin Brek var stofnuð haustið 2018. Hún leikur aðallega frumsamda, alþýðuskotna tónlist sem rekja má í ýmsar áttir. Meðlimir sveitarinnar leggja mikla áherslu á að skapa áhugaverða en notalega stemningu í hljóðfæraleik sínum. Auk þess leggur hún rækt við fjölskrúðuga og vandaða texta. Brek hlaut íslensku tónlistarverðlaunin fyrir bestu þjóðlagaplötuna árið 2021.
Harpa Þorvaldsdóttir söngkona og píanóleikari
Jóhann Ingi Benediktsson gítarleikari og söngvari
Guðmundur Atli Pétursson mandólínleikari
Sigmar Þór Matthíasson bassaleikari
Folk Music Festival in Siglufjörður.