Tix.is

Um viðburðinn
Listahátíð í Reykjavík

Nýjar og töfrandi víddir opnast á tónleikum Persian Path þegar saman koma fimm íranskir tónlistarmenn og tveir íslenskir flytjendur úr fremstu röð. Efnisskrá tónleikanna er fengin af nýlegri og samnefndri plötu þeirra Ásgeirs Ásgeirssonar og Hamid Khansari sem hefur hlotið frábæra dóma fyrir nýsköpun, áræði og áhrifaríkt stefnumót tónlistarstrauma frá ólíkum heimsálfum. Það er sannarlega ekki á hverjum degi sem mikilsvirt tónlistarfólk frá Íran og Íslandi mætist á sviði og flytur þjóðlög frá báðum löndum í nýjum útsetningum. Austræn hljóðfæri, tónmál, taktar og sköpun fléttast saman við rammíslenskar laglínur og blæbrigðaríkan söng Sigríðar Thorlacius. Frá Teheran kemur hópur af leiftrandi hæfileikaríku tónlistarfólki en auk Hamid Khansari verða á sviðinu þau Sara Rezazadeh, Hooman Roomi, Bahar Modiri og Aryan Rezaee.

Ásgeir Ásgeirsson hefur á undanförnum árum farið með íslenska þjóðlagatónlist í frjósamt ferðalag um Miðausturlönd og Suðaustur-Evrópu þar sem tónlistin öðlast nýtt líf handan við hinn vestræna heim.