Tix.is

Um viðburðinn

Listahátíð í Reykjavík

dAzzleMAZE er upplifunarsýning fyrir allra yngstu áhorfendurna og hentar einnig skynsegin börnum. Í sýningunni sem er í senn dansverk og innsetning fögnum við veru okkar í heiminum
og göngum inn í rými þar sem við tökum glöð á móti því óþekkta. Hér hvílir tíminn í sjálfum sér og dýpkar. Sýningin býður upp á fjölþætta skynjunarupplifun og hvatt er til forvitni, könnunar, slökunar og íhugunar. Í þessu rými er engin rétt eða röng hegðun og áhorfendum býðst að njóta uppákomunnar á eigin forsendum. Gestir mega koma inn í rýmið þegar þeir eru tilbúnir, fara út og koma aftur inn eins og hentar. Til þess að auka á sameiginlega upplifun er gestum boðið að velja sér og klæðast búningum í anddyri sem kallast á við búninga dansaranna.

Sýningar föstudagsins og sunnudagsins eru ætlaðar ungum börnum á aldrinum 3—16 mánaða. Sýningin á laugardeginum er helguð skynsegin börnum upp í 3 ára aldur.