Tix.is

Um viðburðinn

Styrktartónleikar fyrir nýrri kirkju í Grímsey, eyjunni fögru við heimskautsbaug. 

Fram koma: Friðrik Ómar, Kristjana Arngrímsdóttir, Óskar Pétursson, Stefán Elí, Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir, Anna Skagfjörð, tríó Jónasar Þórs, Ívars og Valmars. Hljómsveitina skipa Emil Þorri Emilsson, Jón Þorsteinn Reynisson, Kristján Edelstein, Stefán Gunnarsson og Valmar Väljaots.
Kynnir kvöldsins: Sr. Oddur Bjarni Þorkelsson 

Allt listafólkið gefur vinnu sína sem framlag til söfnunarinnar. 

Að kvöldi 21. september 2021 brann Miðgarðakirkja í Grímey til grunna, ásamt öllum kirkjumunum hennar. Slökkvilið eyjarinnar þurfti fljótlega að lúta í lægra haldi en kirkjan varð alelda á örskömmum tíma í stífri norðanátt. Grímseyingar voru strax staðráðnir í byggja nýja kirkju. Útlit nýju kirkjunnar mun hafa augljósa skírskotun til þeirrar gömlu. Einnig er horft til þess að nýja kirkjan þjóni auk helgihalds, hlutverki menningarhúss. Bygging nýrrar kirkju á nyrsta kirkjastað landsins er viðamikið samfélagslegt verkefni sem Grímseyingar leggja nú allt kapp á að verði að veruleika. 

Styrktarsíða Miðgarðakirkju: grimsey.is/kirkja

 

Þeir sem vilja styrkja söfnunina með frjálsum framlögum er bent á söfnunarreikning Miðgarðakirkju:

Kennitala: 460269-2539
Reikningsnúmer: 565-04-250731