Tix.is

Um viðburðinn
Listahátíð í Reykjavík

Hljóðlausu diskógöngurnar hans Guru Dudu eru bráðfyndin ævintýri á götum borgarinnar. Setjið upp heyrnartólin og dansið með!

Guru Dudu dansar með þátttakendum um bæinn og segir þeim frá umhverfinu á sinn einstaka hátt á meðan stórskemmtileg dansuppátæki fá alla til að sleppa fram af sér beislinu og brosa sínu breiðasta. Undir göngunni hljóma hressandi smellir og þessi ógleymanlega dansganga mun kæta gesti úr öllum aldurshópum.

Grínistinn David Naylor býr í Melbourne en hefur komið fram á hátíðum og viðburðum um heim allan sem sjarmatröllið Guru Dudu. Hljóðlausu diskógöngurnar hans kveikja gleði í hverri götu.

Leiðin sem Guru Dudu fer er nokkuð greiðfær hjólastólum en liggur þó í halla.