Tix.is

Um viðburðinn

UPPSELT

Ásgeir heldur upp á tíu ára afmæli plötunnar Dýrð í dauðaþögn með stórtónleikum í Eldborg 27. ágúst.

Ásgeir stígur á svið með stórhljómsveit, brassi og strengjum og verður platan flutt í heild sinni í bland við frumflutning á glænýju efni.

Tíu ár eru liðin síðan Ásgeir Trausti gaf út sín fyrstu lög á vormánuðum 2012 og varð fljótt vinsælasti tónlistarmaður landsins. Platan hans Dýrð í dauðaþögn kom út sama ár og sló öll íslensk sölumet.

Platan hefur selst í yfir 40.000 eintökum og setið samtals 400 vikur á Tónlistanum sem er yfirlit yfir mest seldu plötur landsins. Þannig hefur þessi frumraun Ásgeirs, sem var tvítugur þegar platan kom út, skipað sér sess með ekki ómerkilegri plötum en Gling Gló og barnaplötunum sígildu Kardemommubærinn, Dýrin í Hálsaskógi og Einu sinni var sem ein af 5 mest seldu plötu Íslandssögunnar.

Vestfirska nýstirnið Árný Margrét hitar upp.

HLJÓMSVEIT:
Ásgeir Trausti - Söngur, hljómborð, gítar
Guðmundur Kristinn Jónsson - Hljómborð
Helgi Svavar Helgason - Trommur
Júlíus Aðalsteinn Róbertsson - Gítar, söngur
Sigurður Guðmundsson - Hljómborð
Tómas Jónsson - Píanó
Þorsteinn Einarsson - Gítar, söngur

BRASS:
Samúel Jón Samúelsson - Básúna
Kjartan Hákonarson - Trompet
Óskar Guðjónsson - Saxófónn

STRENGIR:
Hrafnkell Orri Egilsson - Selló
Þórarinn Már Baldursson - Víóla
Páll Palomares - Fiðla
Vera Panitch - Fiðla

Verðsvæðin eru sem hér segir:
Úrvalssæti:       14.990 kr.
Verðsvæði 1:    12.990 kr.
Verðsvæði 2:    11.990 kr.
Verðsvæði 3:     9.990 kr.
Verðsvæði 4:     7.990 kr.

Sjá mynd af sal hér

Umsjón: Sena Live