Tix.is

Um viðburðinn

Boogie-Woogie píanósnillingurinn og söngvarinn Ben Waters blæs til tónleika í Húsi máls og menningar (Laugavegi 18) föstudaginn 22.apríl.

Ben Waters hefur spilað ötullega síðustu áratugi, um 250 tónleika á ári um allan heim og er um þessar mundir í hljómsveit Ronnie Wood (and his Wild Five).

Hann hefur gefið út plötur og komið fram með meðlimum Rolling Stones og er þessa dagana að vinna í verkefni með Jeff Beck. Auk þess var hann um árabil í hljómsveitinni A,B,C, & D of Boogie-Woogie með Charlie heitnum Watts.

Ben Waters spilar ofurhresst boogie-woogie og rokk og ról í anda gömlu meistaranna.

Honum til halds og traust verða Beggi Smári & Bex Band