Tix.is

Um viðburðinn

Það verður að teljast sannkallaður hvalreki fyrir tónlistarunnendur á Íslandi að Aldous Harding leggi lykkju á leið sína til að halda tónleika hér á landi. Hún gaf út sína fyrstu plötu Aldous Harding árið 2014 og hefur síðan þá vakið athygli fyrir lagasmíðar og ekki síður flutning. Plöturnar Party (2017) og Designer (2019) hlutu einróma lof gagnrýnenda og tónlistarunnenda um allan heim. Þannig fékk hún 5 stjörnur af fimm mögulegum í Q tímaritinu og í The Independant fyrir Designer. Lagið The Barrel af plötunni náði talsverðri spilun á Íslandi þegar það kom út í febrúar 2019. Dómar um nýju plötuna Warm Chris eru farnir að birtast og gaf Clash henni 9 einkunn og Mojo og Uncut 8. Lögin Fever og Lawn af Warm Chris hafa heyrst á öldum ljósvakans síðustu vikur.

Aldous Harding hefur unnið síðustu þrjár plötur (Party, Designer og Warm Chris) með tónlistarmanninum John Parish sem er þekktur m.a. fyrir samstarf sitt með PJ Harvey, Eels og Tracy Chapman.

H. Hawkline hitar upp fyrir Aldous Harding 

H. Hawkline (Huw Evans) hitar upp fyrir Aldous Harding í Hljómahöll þann 15. ágúst nk. H. Hawkline er velskur tónlistar- og fjölmiðlamaður sem hóf sólóferil sinn árið 2010 og hefur gefið út fjórar plötur frá þeim tíma. Hann hefur unnið með Cate Le Bon og Kevin Morby og síðustu árin með Aldous Harding en þau eru jafnframt par. Í fjölmiðlaheimum hefur hann m.a. unnið með samlanda sínum Huw Stephens sem er tónlistaráhugafólki hér á landi sem víðar að góðu kunnur. Means that much – H. Hawkline: https://www.youtube.com/watch?v=I4PKrPJhaLs

Húsið opnar kl. 19 og tónleikar hefjast kl. 20.

(ATH - UPPSELT) Rútuferðir eru í boði á milli Reykjavíkur og Hljómahallar. Rútan fer frá BSÍ (N1 planinu) til Hljómahallar kl. 18:30 og fer aftur til Reykjavíkur um leið og tónleikunum lýkur. Þegar búið er að velja miða á tónleikana er hægt að bæta rútuferðum við í kaupferlinu. Miðahafar sem vilja kaupa rútuferðir á Aldous Harding geta einnig keypt þær sérstaklega HÉR. (ATH - UPPSELT)