Tix.is

Um viðburðinn

Bandaríska harðkjarna hljómsveitin Every Time I Die kemur fram á Húrra ásamt Celestine og Mercy Buckets áður en þeir snúa til Bandaríkjanna eftir tónleikarferðalag um Bretland. Alls eru 13 tónleikar bókaðir í Bretlandi og þar af þrennir í London og er nú þegar uppselt á þá alla og er að seljast upp á afganginn af tónleiknunum.

Hljómsveitin Every Time I Die var stofnuð árið 1998 í vesturhluta New York fylkis og hefur hljómsveitin gefið út 7 breiðskífur, fyrsta breiðskífa sveitarinnar Last Night in Town kom út árið 2001 og vakti mikla athygli og lukku meðal harðkjarna aðdáenda hér á landi. Síðasta breiðskífa hljómsveitarinnar From Parts Unknown kom út í júlí 2014 og er þeirra besta útgáfa hingað til.

Hljómsveitin er þekkt fyrir líflega og kraftmikla sviðsframkomu.

Heimasíða Every Time I Die

Facebook síða Every Time I Die

Facebook síða Celestine

Facebook síða Mercy Buckets