Tix.is

  • Allur dagurinn
  • Dagur reiðmennskunnar
  • Stórsýning Fáks
Um viðburðinn

Dagur reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks verða haldin 26. mars næstkomandi í TM-reiðhöllinni í Víðidal.

Einvalalið reiðkennara og knapa mun koma fram á Degi reiðmennskunnar. Um er að ræða fágætan viðburð, enda einstakt tækifæri til að fá innsýn í vinnubrögð nokkurra af okkar fremstu fagmönnum.

Um kvöldið er Stórsýning Fáks með fjölbreyttum og skemmtilegum atriðum þar sem meðal annars koma fram þjóðþekktir knapar og magnaðir gæðingar.

Í anddyri reiðhallarinnar verður markaðstorg þar sem fyrirtæki kynna vörur sínar og þjónustu.

Viðburður sem enginn hestamaður má láta framhjá sér fara!

Dagskrá (birt með fyrirvara):
10:00 til 17:00 Dagur reiðmennskunnar.

Hlé

20:30 – 22:30 Stórsýning Fáks
23:00 – 01:30 Lifandi tónlist í sal reiðhallarinnar

Nánari upplýsingar á www.fakur.is