Tix.is

Um viðburðinn

Armbönd á hátíðina verða afhent 20. apríl í Bæjarbíói eftir kl 16:00 gegn framvísun miða.

HEIMA er nú haldin í sjöunda sinn í Hafnarfirði en hátíðin var fyrst haldin síðasta vetrardag 2014. Engin hátíð var haldin 2020 og 2021 en nú er komið að HEIMA 2022 – síðasta vetrardag, 20. apríl.
HEIMA-hátíðin hefur náð að festa sig í sessi sem skemmtileg og einstök tónlistarhátíð þar sem boðið er upp á öðruvísi upplifun og meiri nánd en tónleikagestir og listamenn eiga að venjast almennt.
Hafnfirðingar munu sem fyrr opna heimili sín í miðbæ Hafnarfjarðar og í hverju húsi spila tveir mismunandi listamenn eða hljómsveitir. Fríkirkjan í Hafnarfirði mun einnig opna dyr sínar eins og undanfarin ár fyrir HEIMA-fólki auk þess sem sviðið í Bæjarbíói verður notað sem bætir enn á fjölbreytileikann.
Listamennirnir eru þrettán og allir koma fram tvisvar í sitthvoru HEIMA-húsinu í miðbænum. Það eru ekki allir að spila á sama tíma þannig að þeir sem eru duglegastir að rölta milli húsa sjá flest atriði. Fyrstu HEIMA-tónleikarnir hefjast um kl. 20.00. og þeim síðustu lýkur um kl. 23.00. Rás 2 verður á staðnum og mun útvarpa hluta dagskrárinnar.

Guðrún Árný og Egill Rafnsson munu svo sjá um sing-along eftirpartíið í Bæjarbíói sem hefst klukkan 23.15 og stendur í amk. klukkustund.

Þeir sem koma fram á HEIMA 2022 eru:

The Vintage Caravan
Viktoría Tómasdóttir
Dúkkulísurnar
Margrét Eir & Thin Jim
Guðrún Árný & Egill Rafnsson
Gugusar
Sigurður Guðmundsson
Krummi
Systur - Sigga, Beta & Elín
Flott
Hildur Vala
Kristján Jóhannsson
BlazRoca ásamt Blaffa