Tix.is

Um viðburðinn

Hrafntinna er einstakur sviðslistaviðburður sem hrífur áhorfendur með sér í ferðalag um ímyndað landslag. Listafólkið yfirstígur hefðbundin landamæri og fléttar saman tónlist, hljóðlist, dansi, gjörningum, leikhúslistinni, myndlist og ljósahönnun þannig að úr verður leiftrandi litaspjald sem er sannur óður til náttúrunnar. Stjórnandinn notar rafrænan hanska til að skapa og kalla fram hljóð og magnar þannig enn frekar leik söngvara og tónlistarfólks að andstæðum, orku og hreyfingum. Með spuna og innsæi leyfir listafólkið tónlist og hreyfingum að kvikna í augnablikinu. Í sýningunni eru mörk hefðbundinna hugmynda um óperuformið rofin og unnið úr frumkröftum náttúrunnar sem skapa flæði frá hinu djúpa, dimma og óþekkta og inn í það óvænta og berskjaldaða þar sem við finnum fyrir viðkvæmni og fegurð.

Gestum býðst að hreyfa sig um á meðan á sýningu stendur og leyfa ímyndunaraflinu að útvíkka ferðalagið. Á bak við Hrafntinnu stendur framsækinn hópur listafólks úr fremstu röð sem býður gestum Íslensku óperunnar á Listahátíð í Reykjavík að njóta upplifunar sem á sér enga líka.

Listrænt teymi - Hrafntinna 
Halldis Rønning - Tónskáld & stjórnandi
Hilmar Thordarson - Tónskáld & raftækni
Thorbjörg Jónsdottir - Vídeóverk

Í listrænu samstarfi við;
Karen Eide Bøen - Danshöfundur
Niels Thibaud Girerd - Sviðsetning
Anton Kroyer - Ljósahönnun
Aron Þór Arnarsson - Hljóð
Helga Lúðvíksdóttir - Búningar
Ísak Freyr Helgason - Útlitshönnuður

Íslenska Óperan:
Oddur Jónsson - barítón
Ragnheiður Jóhannsdóttir - sópran

CAPUT Ensemble:
Guðni Franzson - klarinett
Þuríður Jónsdóttir - flautur
Sigurður Halldórsson - selló
Hrafnkell Örn Guðjónsson (Keli) – slagverk 

IMNO ensemble:
Jostein Stalheim - harmónikka
Guro Skumsnes Moe - bassi & rödd
Else Olsen Storesund - píanó 

Tabula Rasa Vocal Ensemble:
Sigrun Jørdre - sópran
Zsuzsa Zseni - mezzósópran
Tord Kalvenes - tenór
Arild Rohde - tenór

William Hjort-Johansen - aðstoð við hljóðvinnslu/forritun
Egill Kristbjörnsson - aðstoð við myndvinnslu
Óli Starri - aðstoð við myndvinnslu
Friðfinnur Sigurðsson - aðstoð við hljóðvinnslu

Hár og förðun:
Lilja Dís Smáradóttir
Lísa María Markúsdóttir
Kolbrún Vignisdóttir
Maren Anna
Hera Hlín

Svið:
Ólafur Haukur Matthíasson, Snorri Arnarson, Hugi Guðmundsson

Framleiðsla:
Gunnbjørg Johannessen – framleiðsla Syv Mil
Kristinn Brynjar Pálsson - verkefnastjóri Hörpu
Dýri Jónsson - framleiðandi