Tix.is

Um viðburðinn

Kyngimagnað stefnumót einstaks listafólks

"Emiliana meets her orchestral match” (Uncut Magazine)" 

Emilíana Torrini stígur á svið í Eldborg á Listahátíð í Reykjavík þann 19. júní næstkomandi ásamt The Colorist Orchestra en samstarf þessa framúrskarandi tónlistarfólks er hrífandi, litrík og leiftrandi upplifun sem enginn má missa af.

Belgíska hljómsveitin The Colorist Orchestra hefur vakið mikla athygli fyrir frumlega og lifandi nálgun við flutning og útsetningar á tónlist úr ólíkum áttum. Á síðustu árum hefur Emilíana Torrini, ein fjölhæfasta tónlistarkona þjóðarinnar, átt í frjóu samstarfi við hljómsveitina sem hefur glætt lög hennar nýju lífi. Tónlistarfólkið vinnur nú saman að sinni annarri plötu, Racing the Storm, þar sem hljóðheimur þeirra springur út á göldróttan hátt.

****The Guardian - “A vibrant, colourful collection of classical and contemporary collisions”

****The Wall Street Journal - “Enchanting”

****MOJO - “Rousing, otherworldly, outlandish"

 Umsjón: Dægurflugan