Tix.is

Um viðburðinn

SIGUR RÓS
ÁSAMT AMIINA (AMIINA STRENGIR) OG BRASSGAT Í BALA
SAMAN Á SVIÐI Í FYRSTA SKIPTI Í 14 ÁR

UPPSELT Í STÚKU
FÁIR MIÐAR EFTIR Í STÆÐI
NÚ EINNIG Í STREYMI Á VEEPS

Sigur Rós hafa tilkynnt um viðamikla heimsreisu, þá fyrstu í hartnær fimm ár. Fyrst er förinni heitið til Mexíkó, Kanada og Bandaríkjanna, áður en haldið er til Evrópu og túrinn endar svo með stórtónleikum á Íslandi, nánar tiltekið Laugardalshöllinni.

Hljómsveitin er þessa dagana að semja og taka upp sýna fyrstu stúdíóplötu síðan Kveikur komur út árið 2013 og munu flytja nýju lögin á tónleikunum, ásamt efni frá margrómuðum 25 ára ferli. Kjartan Sveinsson hefur gengið aftur til liðs við sveitina eftir um áratuga fjarveru og gengur til liðs við stofnmeðlimina Jónsa og Georg Holm.

“Við þrír erum að semja og taka upp fyrstu Sigur Rósar plötuna síðan við gerðum Kveik árið 2013. Við munum spila nýju lögin á tónleikunum ásamt lögum frá síðustu 24 árum eða svo. Við látum ykkur vita nánar um útgáfu nýju plötunnar fljótlega.”
Jónsi, Georg og Kjartan

Miðaverð:
- Sitjandi stúka:       19.990 kr. (aftast í sal)
- Standandi salur:   14.990 kr. (fremst í sal)

Sjá mynd af sal hér.

Spurt og svarað hér

Umsjón: Sena Live