Hlustendaverðlaunin 2022 verða haldin laugardaginn 19. mars í Kolaportinu en þetta er í níunda skiptið sem hátíðin fer fram.
Útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 standa í sameiningu að Hlustendaverðlaununum. Markmiðið er að gefa íslenskum útvarpshlustendum og tónlistarunnendum tækifæri að velja og verðlauna íslenskt tónlistarfólk, hljómsveitir og einstaklinga sem sköruðu fram úr í tónlist á síðastliðnu ári.
Glæsileg dagskrá verður á hátíðinni sjálfri þar sem úrslit kosningarinnar verða kynnt og sigurvegarar verðlaunaðir í beinni útsendingu á Stöð 2
Fram koma
Aron Can
Bríet
GDRN
HUGO
Kælan Mikla
Jón Jónsson
Írafár
og
Sigga Beinteins