Tix.is

Um viðburðinn

Sigga Beinteins í 40 ár

Komdu og eigðu ógleymanlega stund með Siggu Beinteins og gestum í Eldborg þann 7. maí.

Það verður öllu tjaldað til þegar Sigga Beinteins heldur upp á 40 ára söngafmæli og 60 ára afmælið sitt í Eldborg þann 7. Maí.

Á þessum stóru tímamótum mun Sigga efna til stórtónleika ásamt 9 manna hljómsveit, bakröddum, söngvurum og skemmtikörftum sem hún hefur unnið með í gegnum tíðina. 

Sigga hefur verið ein ástsælasta söngkona landsins frá því hún hóf sinn feril og gefur enn ekkert eftir. Sigga hefur gefið út átta sólóplötur og með hljómsveitinni Stjórninni hafa komið út sex hljómplötur. Sigga er annar tveggja útgefanda af hinu vinsæla barnaefni Söngvaborg og gefið út sjö diska í  seríu svo eitthvað sé nefnt.

Sigga ætlar að vera í sannkölluðu afmælisstuði og syngja lög frá öllum ferlinum, hvort sem um er að ræða lög með Stjórninni, lög af sólóplötunum, lög frá þeim verkefnum sem hún hefur tekið þátt í, eða bara flott lög frá dansleikjum Stjórnarinnar. 

Þetta er viðburður sem þú ættir ekki að láta fram hjá þér fara.