Tix.is

Um viðburðinn

Salóme Katrín, RAKELog ZAAR fagna útgáfu splitt-skífunnar, While We Wait, með tónleikum í Turnhúsinu á Ísafirði þann 5. mars.

Splitt-skífan samanstendur af sjö lögum, tveimur eftir hverja tónlistarkonu og einu sem þær sömdu í sameiningu og er einmitt titillag plötunnar.

Salóme Katrín, RAKEL & ZAAR búa og starfa allar í Reykjavík. Þær kynntust við nám í tónlistarskóla FÍH árið 2018 þegar Sara kom sem skiptinemi frá Danmörku og hafa verið óaðskiljanlegar síðan - bæði sem vinir og sem tónlistarkonur. Síðastliðin ár hafa þær allar stigið fram á sjónarsviðið á ólíkum tímum. ZAAR gaf út stuttskífuna sína Lost My Sense of Humour árið 2019, Salóme Katrín fylgdi svo með stuttskífunni Water árið 2020 og RAKEL gaf út stuttskífuna Nothing Ever Changes árið 2021.

While We Wait kemur út 25. Febrúar 2022 og verður aðgengileg á öllum helstu streymisveitum og á vínyl. Á tónleikunum verður platan leikin í heild sinni auk eldra efnis frá tónlistarkonunum þrem.

Hljómsveitina skipa:

·         Katrín Helga Ólafsdóttir

·         Sólrún Mjöll Kjartansdóttir

·         Hafsteinn Þráinsson

·         Ásta Kristín Pjetursdóttir

·         Jóhanna Sigurðardóttir