Tix.is

Um viðburðinn

Þann 16. desember koma söngkonan GDRN og píanóleikarinn Magnús Jóhann fram á tónleikum í Safnahúsinu (áður Þjóðmenningarhúsið). Söngkonan GDRN hefur látið mikið á sér kræla í íslensku tónlistarlífi frá því að hún gaf út sína fyrstu breiðskífu, Hvað ef, árið 2018. Sú hljómplata hlaut fjölda tónlistarverðlauna, tilnefningu til tónlistarverðlauna norðurlanda og mikla athygli. Síðan þá hefur hún sent frá sér fjölda laga í samstarfi við aðra listamenn sem og aðra breiðskífu, GDRN, árið 2020. Seinni breiðskífu sína vann hún m.a í samstarfi við Magnús Jóhann en leiðir þeirra lágu saman í tónlistarskóla FÍH nokkrum árum áður. Magnús hefur verið mjög virkur í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár sem píanóleikari, upptökustjóri, tónskáld og ýmislegt fleira fyrir fjölda listamanna. Sömuleiðis hefur hann gefið út tvær sólóplötur, eina stuttskífu og dúóplötu ásamt Skúla Sverrissyni, bassaleikara. GDRN og Magnús hafa komið mikið fram saman undanfarin ár, bæði sem tvíeyki og með hljómsveit. Undanfarin misseri hafa þau unnið að gerð hljómplötu þar sem íslenskar tónlistarperlur eru í forgrunni. Tónleikagestum verður boðið upp á forsmekkinn af þeirri plötu, auk laga GDRN sem og jólaperlur í uppáhaldi tvíeykisins.


ATH tónleikagestir verða að framvísa neikvæðu hraðprófi við komu á tónleikana.