Tix.is

Um viðburðinn

Í tilefni 40 ára afmælis vinsælustu kvikmyndar Íslandssögunnar verður meistaraverkið  Með allt á hreinu sýnt á risatjaldi í Eldborg Hörpu, með lifandi tónlistarflutningi Stuðmanna sjálfra.

Ekki láta einstakan viðburð fram hjá þér fara.

Myndin verður sýnd í stórbættum hljóð- og myndgæðum og textar birtast undir sönglögum.

Fram koma:
STUÐMENN í öllu sínu veldi.

Umsjón: Móðurfélagið ehf.

Dúddi: Lásinn er... humm... lásinn er inn út, inn inn út.

Harpa Sjöfn: Hvernig á ég að geta sungið lagið, þetta er ómöguleg tóntegund. Ég syng lengst upp í rassgati.

Sigurjón Digri: Takið af ykkur skónna! Hvað ertu að bóna?

Dúddi: Hér er strax komin ungur maður, virkilega gott samband í kvöld.

Harpa Sjöfn: Þú einblínir alltaf á flísina en tekur ekki notice af bjálkanum.