Texti fyrir Tix og Borgarleikhus.is:
Hnotubrjóturinn - Jólasýningar Dansgarðsins, Klassíska listdansskólans og Óskanda, verða 30. nóvember kl. 16:30 og kl. 19:30.
Klassíski listdansskólinn og Óskandi taka höndum saman og setja upp sína eigin útgáfu af hinu klassíska jólaverki, Hnotubrjótnum. Blandað er saman nútímalistdansi og klassískum ballett. Þetta er í annað sinn sem Dansgarðurinn setur upp Hnotubrjótinn en hið fyrra var síðastliðið ár þegar samkomutakmarkanir voru miklar og útkoman varð dansmynd. Við erum þakklát að fá að sýna afrakstur haustsins á stóra sviði Borgarleikhússins að þessu sinni. Við hlökkum til að deila með ykkur þessari fallegu sýningu sem kemur öllum í hátíðarskap.
Sagan um Hnotubrjótinn í útfærslu Dansgarðsins:
Hnotubrjóturinn er skemmtilegt ævintýri fullt af töfrum. Sagan hefst í jólaboði þar sem Drosselmeyer frændi, göldróttur úra - og leikfangasmiður, kemur í heimsókn. Hann gefur guðdóttur sinni, Klöru, hnotubrjót sem er í álögum en lifnar við eftir að Klara sigrar músakónginn í bardaga. Klara og prinsinn fara inn í töfraheim þar sem snjókorn og englar dansa. Næst fara þau í konungsríki úr sykri, þar sem sykurplómu konungsfólkið tekur á móti þeim og mikil veisla er haldin í tilefni komu þeirra. Þar dansa ýmiss konar góðgæti eins og sykurplómur, súkkulaði, karamella, bollakökur, nammistafir, marsípan, piparkökukrakkar, og að lokum blómaprinsessur.
Dansverkið er unnið eftir sögu E.T. A. Hoffmann. Upprunalegu danshöfundar voru Marius Petipa og Lev Ivanov. Tónlistin er eftir tónskáldið Pyotr Ilyich Tchaikovsky.
Nánari upplýsingar um hvað Dansgarðurinn stendur fyrir:
Dansgarðurinn samanstendur af Óskanda, Klassíska listdansskólanum, Dansi fyrir alla og Forward Youth Company. Markmið Dansgarðsins er að: - Bjóða upp á faglega og fjölbreytta danskennslu í klassískum ballett, nútíma- og samtímadansi og skapandi dansi. - Gera danskennslu og viðburði aðgengilega fyrir börn og ungt fólk. - Efla umræðu um sviðslistir á milli ungra áhorfenda og listamanna. - Sameina og styðja listamenn sem eru að vinna með dans og sviðslistir fyrir ungt fólk og alla áhorfendur. - Vinna með öðrum stofnunum til að svara betur samfélagsþörfum á sviði dans- og sviðslistar.