Tix.is

Um viðburðinn

Olga Vocal Ensemble ætlar að syngja jólin inn í ár í Blönduóskirkju. Þetta verður í fjórða skipti sem Olga heldur tónleika á Íslandi yfir jólahátíðina og í fyrsta skipti sem hópurinn heldur jólatónleika í Blönduóskirkju. Efnisskráin verður skemmtilega fjölbreytt og hentar fólki á öllum aldri og Olga mun m.a. flytja lög af fyrstu jólaplötu hópsins, sem kemur út í byrjun desember og kallast Winter Light.

Fimmtudagurinn 9. desember kl. 20 

Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikarnir hefjast kl. 20:00.

Miðaverð er 3.000 kr

Söngvarar:

Matthew Lawrence Smith - 1. tenór
Jonathan Ploeg - 2. tenór
Arjan Lienaerts - Baritón
Pétur Oddbergur Heimisson - 1. bassi
Philip Barkhudarov - 2. bassi


Tónleikar þessir eru styrktir af menningarsjóði SSNV og menningarsjóði Kaupfélags Skagfirðinga.

Allur aðgangseyrir rennur óskiptur í orgelsjóð Blönduóskirkju.