Tix.is

Um viðburðinn


Allt það besta í tónlist og mat.  

Kjötkompaní er það sannur heiður að kynna  Þorláksmessutónleika Björgvins Halldórssonar og hljómsveitar. Sérstakir gestir að þessu sinni eru hinar frábæru söngkonur  Svala Björgvins og Margrét Eir 

VIð opnum Bæjarbíó kl 21:00. Ein vinsælasta verslun landsins Kjötkompaní mun bjóða gestum uppá glæsilegan jólamat við komu gesta og þar til tónleikar hefjast.  Ath að ekkert hlé er á tónleikunum

Björgvin Halldórsson er einn ástsælasti söngvari landsins og Hafnfirdingur alla leið. Stórglæsilegir stórtónleikar hans “Jólagestir Björgvins”, þar sem hann hefur tekið á móti þúsundum gesta um árabil hafa verið  glæsilegt innkall jólana hjá stórum hluta þjóðarinnar ár hvert.

Bæjarbíó bíður uppá aðra stemmingu og annarskonar nánd. Þetta gamla kvikmyndahús er bæjarprýði í hjarta Hafnarfjarðar og  býður svo sannarlega uppá notalega og heimilslega stemningu. 

Björgvin, Svala og Margrét  og hljómsveit munu flytja mörg af uppáhalds jólalögum margra í bland vid lög sem þessir listamenn hafa sungið í gegnum tíðina. Það er því von á notalegri kvöldstund í hjarta Hafnarfjardar á Þorláksmessukvöldi rétt áður en hátíðin gengur í garð.  


Þetta verða “Litlu Jólin” alla leið.  Tónleikarnir hefjast kl 22.00 og húsið opnar kl 21:00

 

Hljómsveit Björgvins skipa 

Þórir Úlfarsson Hljómborð

Jón E Hafsteinsson Gítar

Kristján Grétarsson gítar

Friðrik Sturluson bassi

Jóhann Hjörleifsson trommur

 

Nánari upplýsingar veitir  Bæjarbíó netfang palli@bbio.is