Tix.is

Um viðburðinn

Ath. Fyrir þennan viðburð þarf að fara í hraðpróf og gæta að grímuskyldu. 

Guðmundur Pétursson heldur blústónleika á Ölveri í annað sinn og fær nú til liðs við sig Davíð Þór Jónsson píanó og orgelmeistara. Auk þeirra spila Mósesmaðurinn Andri Ólafsson á bassa og Kristinn Snær Agnarsson á trommur. Tónleikar Guðmundar og Þorleifs Gauks í október vöktu ómælda hrifningu og er því beðið eftir þessum viðburði með mikilli eftirvæntingu.

Einstakur tónlistarviðburður á nýjum tónleikastað við Laugardalinn.