Tix.is

Um viðburðinn

Hin einstaka Eivör mun halda hlýja og notarlega jólatónleika sem láta engan ósnortinn. 

Eivör, ásamt hljómsveit og góðum gestum mun leika úrval uppáhalds jólalaga sinna ásamt hennar eigin lögum. 

Tryggðu þér miða strax á dásamlega upplifun

Eivör hlaut tónlistaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir árið 2021.

Á vef Norræna samstarfsins má lesa eftirfarandi um afrek hennar á tónlistarsviðinu:

Færeyska tónlistarkonan Eivør Pálsdóttir hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2021 fyrir að hafa með þrotlausri vinnusemi sinni undanfarin ár beint sjónum umheimsins að heimalandi sínu og fyrir að vinna af kostgæfni með eigin tónlistararfleifð og móðurmál.

Phillip Faber, tónlistarstjóri og tónskáld, afhenti Eivøru verðlaunin í beinni útsendingu frá Skuespilhuset í Kaupmannahöfn á þriðjudagskvöld. Annað hvert ár eru tónlistarverðlaunin veitt núlifandi tónskáldi og hitt árið, eins og í ár, eru þau veitt tónlistarhópi eða -flytjanda.

Rökstuðningur dómnefndar
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2021 hlýtur hin færeyska Eivør Pálsdóttir. Eivør hefur byggt upp einstakan feril síðan hún steig nánast fullsköpuð fram á sjónarsviðið í heimalandi sínu, Færeyjum. Hún er afburðahæfileikarík tónlistarkona og hefur gagntekið tónlistarunnendur um allan heim með undurfagurri söngrödd, frábærum gítarleik og heillandi sviðsframkomu. Fyrsta plata hennar, sem bar nafn hennar sjálfrar og kom út árið 2000, bar blæ af þjóðlagatónlist og djassi en síðan hefur Eivør reynt sig við fjölbreytilegar tónlistargreinar; drepið niður fæti í „noise“-rokki, kántrítónlist, tilraunakenndri tónlist, sígildri tónlist og ósviknum poppdívusöng. Öll þessi verkefni hefur hún tekist á við af óvenjumiklu listfengi og heilindum.

Eivør hefur beint sjónum umheimsins að heimalandi sínu með þrotlausri vinnusemi undanfarin ár og hún vinnur af kostgæfni með eigin tónlistararfleifð og móðurmál. Eivør er ósvikinn norrænn listamaður, en um leið hefur henni tekist að marka sér sess sem alþjóðleg poppstjarna sem ferðast um allan heim og er þekkt fyrir sviðsframkomu sína. Hún er hugrökk og forvitin í listsköpun sinni og kann að tengjast áhorfendum sínum á merkilega afslappaðan hátt, með því að snerta á hinu mannlega innra með okkur öllum af bæði þokka og reisn.