Tix.is

Um viðburðinn

BENNI HEMM HEMM & THE MELTING DIAMOND BAND 

Benni Hemm Hemm & the Melting Diamond Band er harðasta og brjálaðasta útgáfan af hljómsveit Benna Hemm Hemm sem heyrst hefur í hingað til. Svo hörð og brjáluð er hún að hún þarf sérstakt nafn og heila útgáfuröð sér til heiðurs. Á næstu mánuðum mun Mengi gefa út heila röð verka sem koma út undir nafninu Benni Hemm Hemm & the Melting Diamond Band. Fyrsta platan dregur nafn sitt af spunaverkunum tveimur: CHURCH / SCHOOL sem flutt verða á tónleikum. 

Verkin tvö sem koma út á þessari plötu eru bæði nálægt því að vera hálftími að lengd og dugir það rétt svo til að koma því til skila sem komast þarf. Í verkunum má heyra flæðandi kaótískar útsetningar fyrir saxófóna, flautur, orgel, fiðlur, trommur, píanó og þarna má heyra upptökufrumraun laumusópranstjörnu. 

Þetta verða epískir tónleikar og ævintýraferð í senn á Dögum myrkurs en Benni Hemm Hemm & the Melting Diamond Band mun fara víða að kynna þessi sköpunarverk sín og er Tónlistarmiðstöð Austurlands einn af fyrstu áfangastöðunum. Ekki missa af þessari eintöku upplifun!