Tix.is

  • FRÍTT INN
  • SKRÁNING NAUÐSYNLEG
Um viðburðinn

Þér er boðið á opnunarhátíð Alþjóðlegrar Barnakvikmyndahátíðar í Reykjavík sem haldin verður í Bíó Paradís fimmtudaginn 28. október kl 17:00 í Bíó Paradís! Frítt inn og allir velkomnir.

Nauðynlegt verður að skrá sig fyrir miðum í gegnum hlekkinn hérna!

Við hvetjum börn á öllum aldri til þess að mæta í búningum og við minnum á að þema hátíðarinnar í ár er HREKKJAVAKA! Léttar veitingar verða í boði.

Dagskrá:

Kl.17:00 HREKKJAVÖKUNORNIN i tekur á móti gestum með skemmtilegri og ævintýralegri uppákomu!

Kl.17:20 Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar setur hátíðina formlega.

Kl.17:30 Opnunarmynd hátíðarinnar sýnd, Nellý Rapp – Skrímslaspæjari – hentar börnum átta ára og eldri, talsett á íslensku. 

Nánar um myndina hér: https://bioparadis.is/kvikmyndir/nelly-rapp-skrimslaspaejari/

Hátíðin er haldin í áttunda sinn, en hátíðin er sú fyrsta og eina sinnar tegundar.