Tix.is

Um viðburðinn

Ari Eldjárn sýnir Áramótaskopið um land allt og verður hægt að sjá sýninguna í Hofi menningarhúsi 18. desember. 

Ari er fyrir löngu orðinn einn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar og hefur auk þess getið sér góðs orðs víða erlendis fyrir gamansýningar sínar. Árið 2020 varð hann fyrsti íslenski skemmtikrafturinn til að fá gamansýningu tekna til sýninga hjá bandarísku streymisveitunni Netflix en þætti hans Pardon my Icelandic var dreift á heimsvísu til fleiri milljóna manna, sem horfðu á og höfðu gaman af. Pardon my Icelandic vann Edduna árið 2021 fyrir skemmtiþátt ársins. 

Þetta er í fimmta sinn sem þessi geysivinsæla sýninga Ara er sett á svið en síðast seldust allar sýningar upp og mættu um 14.000 manns til að kveðja gamla árið með hlátrasköllum. Hver sýning er einstök og mun áherslan vera lögð á að kveðja árið með eftirminnilegum hætti, í bland við annað efni. Ekki missa af þessu einstaka Áramótaskopi!