Tix.is

Um viðburðinn

HRAÐPRÓF
Tónleikagestir þurfa að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi eða PCR-prófi sem er ekki eldra en 48 klst. gamalt, eða vottorði um nýlega COVID-19 sýkingu (eldri en 14 daga og yngri en 180 daga).
Hraðpófin eru ókeypis.

Bókun og staðsetningar:

hradprof.is
Kleppsmýrarvegur 8 | Harpa | Akureyri

testcovid.is
BSÍ | Kringlan | Keflavík

hradprof.covid.is
Suðurlandsbraut 34 og heilsugæsla um allt land.


Ari Eldjárn sýnir Áramótaskopið um land allt og verður hægt að sjá sýninguna í Hljómahöll í Reykjanesbæ þann 16. desember.

Ari er fyrir löngu orðinn einn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar og hefur auk þess getið sér góðs orðs víða erlendis fyrir gamansýningar sínar. Árið 2020 varð hann fyrsti íslenski skemmtikrafturinn til að fá gamansýningu tekna til sýninga hjá bandarísku streymisveitunni Netflix en þætti hans Pardon my Icelandic var dreift á heimsvísu til fleiri milljóna manna, sem horfðu á og höfðu gaman af. Pardon my Icelandic vann Edduna árið 2021 fyrir skemmtiþátt ársins.

Þetta er í fimmta sinn sem þessi geysivinsæla sýninga Ara er sett á svið en síðast seldust allar sýningar upp og mættu um 14.000 manns til að kveðja gamla árið með hlátrasköllum. Hver sýning er einstök og mun áherslan vera lögð á að kveðja árið með eftirminnilegum hætti, í bland við annað efni.

Ekki missa af þessu einstaka Áramótaskopi!