Tix.is

Um viðburðinn

Eyjatónleikar verða haldnir í Eldborgarsal Hörpu á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 21.apríl. Fjöldi frábærra listamanna koma þá saman og leika öll yndislegu Eyjalögin. Það er löngu kominn tími á að við fáum tækifæri á að rifja upp öll uppáhalds Eyjalögin, syngja með, upplifa sanna Eyjastemningu, koma saman og gleðjast.

Í gegnum tíðina hefur verið blandað saman landsþekktu listafólki og listafólki úr Eyjum. Á þessum 10 árum er fjöldi listamanna kominn langt á annað hundraðið. Þetta árið fáum við Magna Ásgeirs, Stefaníu Svavars, Kristján Kristjánsson (KK), Hreim Örn Heimisson höfund Þjóðhátíðarlagsins í ár, Magnús Kjartan Eyjólfsson brekkusöngvara 2021 og Eyjafólkið Rúnar Kristinn Rúnarsson (Vöggssonar), Söru Renee og Unu Þorvaldsdóttur til að syngja.  

Hljómsveitastjóri: Þórir Úlfarsson

Hljómsveit:
Birgir Nielsen Þórsson, trommur
Eiður Arnarsson, bassi
Jón Elfar Hafsteinsson, gítar
Matthías Stefánsson, gítar og fiðla
Kjartan Valdemarsson, hljómborð og harmonikka
Ari Bragi Kárason, trompet
Sigurður Flosason, saxafónn, flautur og slagverk

Bakraddir: Kristján Gíslason og Alma Rut Kristjánsdóttir.

Að venju verða þarna flutt mörg af bestu og yndislegustu lögum Eyjanna og svo notum við tímann vel, mætum snemma, gefum okkur góðan tíma í hléi og nýtum tímann eftir tónleikanna, því þetta er jú eitt allra stærsta og glæsilegasta árgangs-, ættar- og vinamót veraldar.

Umsjón: Stóra Sviðið ehf