Tix.is

Um viðburðinn

Námskeiðið hefst fimmtudaginn 14. október kl. 17 - 19 og fer fram þrjá fimmtudaga í röð 14, 21 og 28 október. Verð 12.500 kr. fyrir öll þrjú skiptin. 

Staðsetning: Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi 1 

Sunna will run a workshop in free needlework starting Thursday the 14th. of October from 17 - 19. The workshop will take place in the museum three Thursdays in a row. The fee is 12.500 ISK for the three evenings. 

Fyrir hverja: Byrjendur í útsaumi (ekki er þörf á að hafa neinn grunn í útsaumi)

Hvað er „frjáls útsaumur“?

Útsaumur þar sem ekki þarf að telja út í java/stramma og án þess að stuðst sé við forskrift – þannig er það frjálsari útsaumur en til að mynda harðangur, klaustur og ýmiss hvítsaumur.

Markmið: Að þátttakendur öðlist grunn í útsaumi sem hægt er að nota til skreytingar á ýmsum textíl og geti saumað út sér til gagns og gleði.

Hvað þarf að koma með?

Gott að mæta með eigin skæri. Útsaumshring og fingurbjörg ef vill (ekki nauðsynlegt).

1. skipti

Þátttakendur sauma lítinn prufuklút með sjö mismunandi útsaumssporum – t.d. leggsaumi og frönskum hnútum – sem nýtast vel þegar sauma á fríhendis.

2. skipti

Þátttakendur halda áfram að tileinka sér að sauma út með útsaumssporunum sem farið var yfir í fyrri tíma. Innblástur að næsta verkefni fenginn öðrum þræði úr íslenskri flóru. Farið yfir samspil lita og efnis og eins hvernig ná má fram mismunandi áferð með ýmiss konar útsaumsgarni.

3. skipti

Þátttakendur hvattir til að mæta með textíl, t.d. gamla flík, sem hægt væri að skreyta með útsaumi, t.d. á kraga eða framan á ermalíningum.