Tix.is

Um viðburðinn

Tumi Árnason, saxófónn
Magnús Jóhann, píanó
Skúlí Sverrisson, rafbassi
Magnús Trygvason Eliassen, trommur.

Í upphafi rennur allt saman. Bergmál á hljóðsprettum byrgir sýn.
Jafn og þétt minnkar bergmálið þegar við færumst nær síbreytilegum kvikum kjarna.

Tumi Árnason, saxófónleikari og tónskáld, flytur tónverkið Hlýnun þar sem tekist er á við eina helstu tilvistarógn samtímans, hamfarahlýnun, í gegnum frjálsa jazz tónlist, framúrstefnu og tilraunakenndan spuna.
Í Hlýnun stígur hlustandi inn í iðrandi vistkerfi. Fjögur hljóðfæri hverfast hvert um annað og skapa lifandi tónheim sín á milli. Lífeind sem vex og dafnar, finnur jafnvægi en verður síðan óstöðug þegar einsleitnin olnbogar sig fram fyrir fjölbreytileikann. Söngvar útdauðra fuglategunda láta á sér kræla, sálumessa lífsins þeysist upp úr orgelinu, kerfis- og vélahugsun mannsins hrellir verkið, æsir upp ákefðarstrauma og ógnar samfellunni. Í látunum týnast meðlimir og heildin hnignar. Að lokum taka við tregafullar heimsendahljóðmyndir, þagnir og suð.
Að lokum leysumst við upp í ryk og draugagang innan um vélarnið og tóm