Ölverk brugghús kynnir bjórhátíð sem enginn sannur bjóraðdáðandi ætti að láta framhjá sér fara.
Bjórhátíðin fer fram helgina 22. til 23. október í alvöru ´tropical´ gróðurhúsi sem er staðsett í Þelamörk 29, miðsvæðis í Hveragerði.
Á bjórhátíðinni mun gestum gefast tækifæri á því að smakka á hinum ýmsu vörutegundum frá framleiðendum víðsvegar af landinu.
Staðfestur listi framleiðenda ( uppfærist reglulega )
- Húsavík Öl ( Húsavík )
- The Brothers Brewery ( Vestmannaeyjar )
- Víking brugghús ( Akureyri )
- Litla brugghúsið ( Garðinum )
- Malbygg ( Reykjavík )
- Og Natura ( Hafnarfjörður )
- Smiðjan brugghús ( Vík )
- Stereo bar ( Reykjavík )
- Agla gosgerð ( Reykjavík )
- Eimverk distillery ( Garðabæ )
- Borg brugghús ( Reykjavík )
- Álfur brugghús ( Reykjavík )
- Böl brugghús ( Reykjavík )
- Session Craftbar ( Reykjavík )
- Ölverk brugghús ( Hveragerði )
- Ægir brugghús ( Reykjavík )
- RVK brewing ( Reykjavík )
- Icelandic Glacial ( Ölfus )
- Beljandi brugghús ( Breiðdalsvík)
- Austri brugghús ( Egilsstaðir)
- Gæðingur brugghús ( Kópavogur)
- Ölvisholt brugghús ( Flóahrepp )
- Segull 67 brugghús ( Siglufjörður )
- Mjólkursamsalan ( Reykjavík )
- KHB Brugghús ( Borgarfjörður Eystri )
Dagskrá
Föstudagurinn 22.október
16:00 - 17:00 Afhending armbanda í innri sal veitingarstaðar Ölverk
17:00 - 20:00 Framleiðendur gefa smakk af sínum vörum. DJ RASHLEY sér um þeyta skífum fyrir þyrsta bjórhátíðargesti. Einungis fyrir armbandsgesti
20:00 - 21:00 Bjartmar Guðlaugsson. Einungis fyrir armbandsgesti.
21:00 - 00:00 DJ Gunni Ewok og barsala. Ókeypis aðgangur fyrir armbandsgesti en 1000,- fyrir aðra gesti á meðan húsrúm leyfir.
Laugardagurinn 23.október
15.00 - 16:00 Afhending armbanda í innri sal veitingarstaðar Ölverk.
16:00 - 20:00 Framleiðendur gefa smakk af sínum vörum. DJ Atli Kanill sér um þeyta skífum fyrir þyrsta bjórhátíðargesti. Einungis fyrir armbandsgesti.
20:00 - 21:30 Hljómsveitin Hjálmar og barsala. Einungis fyrir armbandsgesti.
21:30-01:00 FM Belfast (DJ sett - Árni / Ívar / Örvar) og barsala. Ókeypis aðgangur fyrir armbandsgesti en 1000,- fyrir aðra gesti á meðan húsrúm leyfir.
----- Hagnýtar upplýsingar -----
Staðsetning
Bjórhátíðin fer fram í gróðurhúsi hér fyrir aftan Ölverk pizza & brugghús, eða nánar tiltekið í Þelamörk 29 Hveragerði.
Miðaverð
Helgararmband 10.600,- ( föstudags og laugardagspassi)
Föstudagsarmband 6300,- (mjög takmarkað magn)
Laugardagsarmband 6300,- (mjög takmarkað magn)
Innifalið í miðaverða
Sérmerkt armband á skemmtilega tveggja daga bjór,- tónlistarhátíð; smakk á vörum frá hinum ýmsu framleiðendum, tækifæri til þess að þess að eiga skemmtilegt samtal við fólkið á bakvið vörumerkin, sérvalin tónlistaratriði og DJ dans-eftirpartý bæði kvöldin.
Afhending armbanda
Dagana 18. október til 21. október verður á vissum tímum hægt að nálgast armböndin gegn framvísun miða á Ölverk Pizza&Brugghúsi í Hveragerði.
Sjálfa bjórhátíðarhelgina, föstudaginn 22. október og laugardaginn 23.október, mun afhending armbanda fara fram við hátíðarsvæðið eða inn á Ölverk inn í Ölheimum.
Sóttvarnir
Farið verður eftir gildandi sóttvarnarreglum.
Aldurstakmark
20 ára aldurstakmark er á bjórhátíðina og eru skilríki nauðsynleg.
Samgöngur
Aðstandendur Bjórhátíðar Ölverk halda ekki utan um skipulagðar sætaferðir á bjórhátíðina en hvetja samt sem áður gesti hátíðarinnar til þess að nýta þá almenningssamgöngumáta sem í boði eru eins og eftirfarandi strætisvagnaferðir milli Hveragerðis og Reykjavíkur. (Birt með fyrirvara um villur - nánari upplýsingar er að finna á www.straeto.is)
Föstudaginn 22.október´21
RVK - HVG
Strætó - Leið 52 - Frá Mjóddinni í Hveragerði (Orkuskálinn)
15:04
Strætó - Leið 51 - frá Mjóddinni til Hveragerðis (Orkuskálinn)
16:29
HVG - RVK
Strætó - Leið 51 - frá Hveragerði (Orkuskálinn) í Mjóddina
19:37
Strætó - Leið 52 - Frá Hveragerði (Orkuskálinn) í Mjóddina
21:51
Laugardaginn 23.október´21
RVK - HVG
Strætó - Leið 52 - Frá Mjóddinni í Hveragerði (Orkuskálinn)
15:04
HVG - RVK
Strætó - Leið 52 - frá Hveragerði (Orkuskálinn) í Mjóddina
19:37
Strætó - Leið 51 - Frá Hveragerði (Orkuskálinn) í Mjóddina
22:37
Bílastæði
Nóg verður af bílastæðum á malarplaninu á móti hátíðarsvæðinu.
Veitingasala
Veitingasala verður á hátíðarsvæðinu alla helgina einnig verður opið á veitingarstað Ölverk samkvæmt opnunartíma (sérstakur afsláttur af matseðli á Ölverk til armbandsgesta).
Nánari upplýsingar
Spurningar og fyrirspurnir sendist á beerfestival@olverk.is
Linkur á Facebook síðu Ölverk:
https://www.facebook.com/olverkbrugghus
Linkur á Instagram síðu Ölverk: