HERA BJÖRK
ILMUR AF JÓLUM í 20 ÁR
Söngkonan góðkunna HERA BJÖRK leiðir okkur inn í jólahátíðina með hátíðlegum tónleikum í Hallgrímskirkju þann 20.desember 2021.
Jólaplatan ILMUR AF JÓLUM fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir.
HERA BJÖRK býður af því tilefni til glæsilegrar tónlistarveislu ásamt góðum gestum, kór og föngulegum hópi tónlistarfólks. Saman munu þau flytja lögin af ILMUR AF JÓLUM I & II í bland við vel valdar jólaperlur og með því færa okkur hina einu sönnu jólastemmningu inn í jólahátíðina.
Gestasöngvarar
Páll Óskar Hjálmtýsson
Hjördís Geirsdóttir
Ari Ólafsson
Þórdís Petra
Kórinn Vox Felix
undir stjórn Arnórs Vilbergssonar
Karlaraddir: VÓKAL
Hljóðfæraleikarar
Halldór Smárason - píanó / hljómborð
Sigurður Flosason - blásturshljóðfæri
Davíð Sigurgeirsson - gítar
Valdimar Olgeirsson - bassi/kontrabassi
Arnór Vilbergsson - Orgel
Strengjakvartettinn LÝRA
Sigrún Harðardóttir - 1. fiðla
Sigrún Jónsdóttir - 2. fiðla
Karl James Pestka - Víola
Unnur Jónsdóttir - Selló
Hljómsveitarstjórn og útsetningar
Halldór Smárason
Hljóðmeistari
Hrannar Kristjansson
Grafík og myndvinnsla
Ólöf Erla SVART Design
Táknmálstúlkur:
Margrét Auður Jóhannesdóttir
Verkefnastjórn
Valgeir Magnússon
Stjórnandi
Hera Björk
Umsjón
HB Músík
Fylgstu með HERU BJÖRK og ILM AF JÓLUM hér:
Framvísa þarf neikvæðu hraðprófi og þá er grímuskylda á viðburðinum.