Tix.is

Um viðburðinn

29. september –  Unnur Birna & Björn Thoroddsen Band
Unnur Birna, söngur, fiðla
Björn Thoroddsen, gítar
Sigurgeir Skafti, bassi
Skúli Gíslason, trommur
Hin ferska og afbragðsgóða hljómsveit mun gleðja gesti Múlans á upphafaskvöldi klúbbsins þetta haustið. Hinir ýmsu stílar verða leiknir af alúð hjá þessum úrvalstónlistarmönnum og aldrei að vita hvað getur gerst í hita leiksins. Samsuða af jazzi, django, blúsi, rokki, poppi og svo miklu meira. Með Unni Birnu og Birni leika Skúli Gíslason á Trommur og Sigurgeir Skafti á bassa. Við hvetjum fólk til að missa ekki af þessum tónleikum en þetta eru þeir síðustu áður en hin margrómaða Gítarveisla Bjössa Thor verður í lok október.