Tix.is

Um viðburðinn

Enn á ný kemur Einar Kárason rithöfundur á Söguloftið í Landnámssetrinu með hina mögnuðu sögu Stormfugla. Frásögnin er byggð á samnefndri bók Einars sem kom út árið 2018 og fékk frábærar viðtökur. Þar segir hann magnaða sögu um afdrif íslenskra sjómanna sem lenda í aftakaveðri úti fyrir Nýfundnalandi og byggir á sönnum atburðum.

Einar Kárason er einn vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar og hefur slegið í gegn sem sagnamaður með sýningum sínum á hér Söguloftinu í Landnámssetrinu og víðar.

Stormfuglar er áhrifamikil saga um örvæntingarfulla baráttu íslenskra sjómanna við miskunnarlaus náttúruöfl, á síðutogara sem lendir í aftakaveðri vestur undir Nýfundnalandi. Togarinn hleður á sig ísingu í nístandi frosti og ofsaroki, og klakabrynjan er við það að sliga drekkhlaðið skipið. Frá miðunum í kring berast neyðarköll annarra skipa sem eins er ástatt um. Baráttan er upp á líf og dauða.

Áhorfendur mega eiga von á óvenjulegri og áhrifamikilli stund, þar sem sagnaþulurinn Einar flytur þessa áhrifamiklu  sögu í návígi við áhorfendur.