Tix.is

Um viðburðinn

Lúðrasveit Hafnarfjarðar

Lúðrasveit Hafnarfjarðar var stofnuð 31. janúar 1950 og fyllti því 70 árin í fyrra. Þar sem þá voru ekki aðstæður til að fagna blæs sveitin nú til síðbúinna afmælistónleika í Norðurljósum. Á efnisskránni eru mestanpart gömul og ný verk samin fyrir lúðrasveit, til dæmis eftir John Philip Sousa og Philip Sparke, en einnig útsetningar af tónlist úr söngleikjum og kvikmyndum.

Stjórnandi Lúðrasveitar Hafnarfjarðar er Rúnar Óskarsson.