Jólaóratórían eftir J.S. Bach er án efa frægasta tónverk
jólanna og er flutt um allan heim í aðdraganda jóla og segir söguna af fæðingu
Jesú á einstaklega áhrifamikinn og hrífandi hátt.
Jólaóratórían er nú
flutt í tilefni af upphafi fertugasta starfsárs Mótettukórsins og
Listvinafélagsins í Reykjavík og 40 ára starfsafmæli Harðar Áskelssonar á
Íslandi, eftir að framhaldsnámi hans erlendis lauk.
Flytjendur eru
Mótettukórinn, Alþjóðlega barokksveitin í Reykjavík og einsöngvararnir Herdís
Anna Jónasdóttir sópran, Alex Potter kontratenór, Benjamin Glaubitz
tenór, sem syngur hlutverk guðspjallamannsins og einsöngsaríur og Jóhann
Kristinsson bassi. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Með flutningi Jólaóratóríunnar
heldur Hörður Áskelsson áfram að gefa íslenskum tónleikagestum kost á að
upplifa stórverk tónbókmenntanna í flutningi einvalaliðs hljóðfæraleikara sem
hafa sérhæft sig í barokkflutningi og einsöngvara og kórs í fremstu röð.
Fluttar verða fjórar fyrstu kantöturnar (I-IV af VI) og tekur hver kantata
u.þ.b. 30 mínútur í flutningi.
Tónleikarnir eru um 2 og 1/2 klst með hléi.
Flytjendur eru alls um 85 - 60 manna kór, 20 hljóðfæraleikarar, 4 einsöngvarar
og stjórnandi.
Mótettukórinn er fullur tilhlökkunar
að flytja þetta verk nú í annað sinn í Hörpu, en kórinn flutti allar 6
kantöturnar í nývígðri Hörpu á 30 ára afmæli sínu 2012. Alþjóðlega
barokksveitin í Reykjavík flytur verkið nú í 5. sinn undir stjórn Harðar
Áskelssonar, en barokksveitin, sem skipuð er afburða hjóðfæraleikurum bæði frá
Íslandi og víða að úr heiminum, hefur ávallt fengið mikið lof fyrir leik sinn.