Gítarveisla Björns Thoroddsen þann 30. október næstkomandi í hinu glæsilega Bæjarbíói í Hafnarfirði.
Björn hefur haldið gítarhátíðina Guitarama 12 sinnum hérlendis og 7 sinnum á erlendri grundu. Gítarveislan verður því sú 20. í röðinni núna í október. Þeim tímamótum ætlum við að fagna með vel völdum hópi af framúrskarandi listamönnum.
Eftirtaldir koma fram á Guitarama 2021:
Óskar Logi
Unnur Birna Björnsdóttir
Þórður Árnason
Jóhann Helgason
Guitar Islandico
Jón Rafnsson
Birgir Hrafnsson
Reynir Hauksson
Sigurgeir Skafti Flosason
Það má því fastlega búast við ansi eftirminnilegu kvöldi þar sem hinir ýmsu músíkstílar verða leiknir og tónlist frá all mörgum tímabilum.
Takið daginn frá og sjáumst í Bæjarbíói þann 30. október!
Við hvetjum fólk til að tryggja sér miða í tíma, en síðast komust færri að en vildu.