Andri Björn Róbertsson
bassa-baritónsöngvari og Barokkbandið Brák leiða saman hesta sína í einstakri
franskri barokktónlistarveislu í Norðurljósum, Hörpu þann 17. Október
næstkomandi.
Á tónleikunum sem eru einskonar kammertónleikar, verður leikin
þekkt tríó sónata eftir Francois Couperin sem og minna spiluð fiðlusónata eftir
Jean-Marie LeClair og þar á milli verður fléttað inn dansandi hljóðfæratónlist
Marin Marais. Andri Björn, sem mun á þessum tónleikum koma fram í fyrsta skipti
með Brák, syngur kantötuna Aquilion et Orithie e. Jean Philippe Rameau og
veraldlegu kantötuna Polipheme eftir tónskáldið Louis-Nicolas Clérambault.
Andri Björn er rísandi stjarna í óperuheiminum í dag, og hefur nú þegar getið
sér gott orðspor úti í heimi og mun hann án efa ásamt Brák gera þessa tónleika
eftirminnilega!