Tix.is

Um viðburðinn

Tónaflug með Dúndurfréttum

Hljómsveitin Dúndurfréttir hefur undanfarin ár verið þekkt fyrir að spila klassískt rokk af ýmsum toga. Þar má nefna hljómsveitir á borð við Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep Purple, Urian Heep, Bítlana, Kansas, Boston og Queen.  

Þeir ætla að mæta í Egilsbúð í Neskaupstað laugardagskvöldið 16.október og flytja vel valda blöndu af þessu prógrammi og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi af þessu hlaðborði rokksins. Gleðin verður í fyrirrúmi og markmiðið er að hver einasta manneskja gangi glöð út úr Egilsbúð eftir þessa tónleika. 

Tónleikarnir eru hluti af Tónaflugi í Neskaupstað sem er samstarfsverkefni SÚN, Menningarstofu Fjarðabyggðar, og Beituskúrsins/Hildibrand.