Tix.is

Um viðburðinn

Allt það sem við óskum okkur í ár eru Jólagestir Björgvins, metnaðarfyllstu og skemmtilegustu jólatónleikar landsins. Síðustu 14 ár hefur Björgvin Halldórsson fært okkur jólin með stæl og boðið til sín skærustu söngstjörnum landsins til að töfra fram sannkallaða jólastemningu.

Tónleikarnir í ár fara fram laugardaginn 18. desember í Nýju-Laugardalshöllinni og í beinu streymi og hefur Björgvin að vana handvalið landslið söngvara, besta bandið, strengi, kóra, dansara og óvæntar uppákomur. Öll umgjörðin verður eins og áður að sjálfsögðu á heimsmælikvarða.

Tvennir tónleikar eru í boði; kl. 17 og 21. Athugið að ekki er hægt að bæta við fleiri tónleikum. 

Gestir Björgvins í ár eru:

Eyþór Ingi
Gissur Páll
Högni
Jóhanna Guðrún
Margrét Rán
Stefanía Svavars
Svala
Sverrir Bergmann

Sérstakur gestur: Krummi

Ásamt þeim koma fram Stórsveit Jólagesta undir stjórn Þóris Baldurssonar, strengjasveit undir stjórn Geirþrúðar Ásu Guðjónsdóttur, Reykjavík Gospel Company undir stjórn Óskars Einarssonar, Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarssonar, Barnakór Kársnesskóla undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur og dansarar úr Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar.

Einnig koma fram sigurvegarar í Jólastjörnunni 2021 ásamt Jólastjörnunni Fríði París og sigurvegarar Jólalagakeppni Rásar 2, Heimilstónar. 

VERÐSVÆÐIN
Í boði eru fimm verðsvæði á hverja tónleika og 1.000 kr. ódýrara er í öll svæði á dagtónleikum heldur en á kvöldtónleikum. Verðsvæðin eru sem hér segir:

Dagtónleikar:
Platínum:       13.990 kr.      
Gull:                11.990 kr.      
A svæði:          8.990 kr.     
B svæði:          7.990 kr.     
C svæði:          5.990 kr.       

Kvöldtónleikar:
Platínum:       14.990 kr.      
Gull:                12.990 kr.        
A svæði:          9.990 kr.       
B svæði:          8.990 kr.        
C svæði:          6.990 kr.        


Umsjón: Sena Live