ENN FLEIRI SÝNINGAR KOMNAR Í SÖLU!
Það seldist upp á fyrstu sýningar Sóla Hólm- LOKSINS Eftirhermur á augabragði og nú er búið að bæta við fleiri sýningum í sölu.
Eftirherman og skemmtikrafturinn Sóli Hólm hefur undanfarin misseri, líkt og aðrir sviðslistamenn, þurft að beisla sína þrá og löngun til að standa á sviði og gera tilveru fólks örlítið jákvæðari.
Nú segir hann hingað og ekki lengra og stígur á stokk með nýja uppistandssýningu í Bæjarbíói sem ber heitið LOKSINS Eftirhermur en fyrir Covid 19 faraldurinn sáu yfir tíu þúsund gestir sýninguna Varist eftirhermur. Þegar faraldurinn brast á var Sóli enn að sýna þá sýningu fyrir fullu húsi.
Sýningarnar fara fram í Bæjarbíói Hafnarfirði og mælst er til þess að fólk tryggi sér miða hið fyrsta.