Tix.is

Um viðburðinn

Gefðu Fimmu & Sky Lagoon kynna:

Bríet, Rubin Pollock & Þorleifur Gaukur í Sky Lagoon. Einstakir tónleikar á einstökum stað.

Tónleikarnir fara fram þann 7. september næstkomandi í Sky Lagoon / Takmarkað miðaframboð.

Húsið opnar kl 20.00. DJ Margeir tekur á móti tónleika gestum.

Bríet stígur svo á svið með Rubin Pollock & Þorleifi Gauki og saman ætla þau að skapa ógleymanlega upplifun.

Allur ágóði af tónleikunum rennur óskertur í Fjársjóð barna, nýstofnaðan sjóð sem styrkir verkefni sem stuðla að aukinni velsæld, velferð og hamingju barna. Fyrsta úthlutun sjóðsins mun renna til Rjóðurs, hjúkrunar-, hvíldar- og endurhæfingardeild fyrir langveik börn.

Þessir mögnuðu tónleikar eru lokahnykkurinn í Gefðu fimmu söfnun sumarsins sem vakið hefur mikla athygli á samfélagsmiðlum.

Gefðu fimmu er skemmtilegt hreyfi- og fjáröflunarátak, þar sem þátttakendur geta gert sjálfum sér og öðrum gott, gefið til góðs málefnis og skorað á vini, fjölskyldu og samstarfsfélaga um að gera slíkt hið sama.

Allar upplýsingar um fyrirkomulag Gefðu Fimmu er að finna á gefdufimmu.is.

Miðasala hefst miðvikudaginn 1. sept kl. 12 á tix.is, sem er styrktaraðili tónleikanna.

Pure Pass tónleikamiði

Pure er vinsælasta leiðin í Sky Lagoon og veitir aðgang að almennri búningsaðstöðu ásamt Ritúal meðferðinni.
Verð 9,990 kr. 

Sky Pass tónleikamiði

Lúxusleið í Sky Lagoon, með fullbúnum einkaklefa með sturtu og húðvörum ásamt Ritúal meðferðinni.
Verð 13,900 kr.

Sky Lagoon býður upp á handklæði til afnota en öllum er frjálst að koma með sín eigin og nota á svæðinu.

Börnum yngri en 12 ára aldri eru óheimill aðgangur að Sky Lagoon. Börn frá 12–14 ára aldri verða að vera í fylgd foreldra/forráðamanna (18 ára og eldri).

Vinsamlegast athugið að ljósmyndari mun mynda tónleikana og með því að mæta samþykkir þú að láta mynda þig.