Sinfóníuhljómsveit Austurlands heldur tónleika þann 12. september 2021 á Eskifirði sem bera titilinn La Dolce Vita og verður tónlist sem tengist Miðjarðarhafinu í sviðsljósinu. Gítarleikarinn Svanur Vilbergsson leikur einleik með sveitinni. Hljómsveitarstjóri verður Guðmundur Óli Gunnarsson og konsertmeistari Zsuzsanna Bitay.
Miðaverð 3500 kr. / 2000 kr. fyrir eldri borgara. Frítt er á tónleikana fyrir 16 ára og yngri.
Flytjendur:
Sinfóníuhljómsveit Austurlands
Einleikari: Svanur Vilbergsson, gítar
Hljómsveitarstjóri: Guðmundur Óli Gunnarsson
Konsertmeistari: Zsuzsanna Bitay
Efnisskrá:
Wolfgang Amadeus Mozart - Forleikur að Brúðkaupi Figaros
(1756 – 1791)
Joaquín Rodrigo - Concierto de Aranjuez
(1901 – 1999)
Felix Mendelssohn - Sinfónía nr. 4 í A-dúr op.90 – „Ítalska“
(1809 – 1847)